Íslenskir hellar


Bókin Íslenskir hellar eftir Björn Hróarsson er 672 blaðsíður, fyrra bindið er 320 blaðsíður og síðara bindið er 352 blaðsíður. Myndirnar eru um 1000, þar af eru uppdrættir af um 100 hraunhellum.

Í bókinni er lýst á fimmta hundrað hellum sem eru samanlagt yfir 100 kílómetrar að lengd og að umfangi yfir fimm miljónir rúmmetra.

Hellafræðin er kynnt og tilurð hraunhella útskýrð. Fjallað er um hraunrennsli og þær myndanir sem íslenskir hraunhellar geyma. Hellarannsóknir, hellamennska og umgengni í hellum er til umfjöllunar svo eitthvað sé nefnt.

Eitt af markmiðum útgáfunnar er að kynna þessa undirheima og upplýsa um undur þeirra og hvernig skuli um þá gengið. Bókinni er beinlínis ætlað að koma í staðinn fyrir hellaferðir enda nú hægt að njóta hellanna heima í stofu eða "sitja kyrr á sama stað en samt að vera að ferðast".

Þótt bókin sé eðlilega búin til fyrir lesendur sína eins og aðrar bækur er hún einnig og ekki síður sett saman fyrir hellana sjálfa. Þeir þurfa á því að halda að um þá sé vitað og um þá sé fjallað. Það er hvorki hægt að skoða, virða, nýta né vernda heim sem ekki er vitað um. Bókin fjallar þannig ekki bara um hellana heldur var hún einnig hugsuð fyrir þá.

Björn Hróarsson er jarðfræðingur sem stundað hefur rannsóknir á hraunhellum og hraunrennsli í rúman aldarfjórðung. Hann naut aðstoðar fjölmargra hellamanna og sérfræðinga við gerð bókarinnar. Heimildaskráin telur til dæmis um 700 titla. Þá eiga um 40 ljósmyndarar, innlendir og erlendir, myndir í bókinni.

Bókin Íslenskir hellar var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og til Viðurkenningar Hagþenkis. Þá hlaut bókin viðurkenningu Gjafar Jóns Sigurðssonar.

Þá fékk Björn Hróarsson á árinu 2007 erlend rannsóknaverðlaun fyrir verk sitt, Íslenskir hellar. Enska hellafélagið The Shepton Mallet Caving Club velur og verðlaunar árlega mesta stórvirki félagsmanna í hellarannsóknum. Verðlaunin eru kennd við hellarannsóknarmanninn Bryan Ellis en hann teiknaði kort af Raufarhólshelli árið 1970. Það kort er í bókinni Íslenskir hellar. Verðlaunin eru peningaverðlaun og farandstytta af hellakönnuði. Fyrir nokkrum árum fékk Hayley Clark þessi verðlaun fyrir kort af hellinum Flóka sem birt er í bókinni Íslenskir hellar ásamt upplýsingum um verðlaunin. Á aðalfundi félagsins nýverið fékk Björn Hróarsson þessi verðlaun fyrir bókina Íslenskir hellar. Er það í fyrsta sinn sem einstaklingur sem ekki er Breti fær þessi verðlaun. Á heiðursskjali sem verðlaunum fylgdu segir: "The SMCC Bryan Ellis Award - 2007 - Presented to Björn Hróarsson for the outstanding Íslenskir hellar".

Með því að smella hér má sjá fáeinar af ljósmyndum bókarinnar.

Með því að smella hér er hægt að kaupa bókina.




Forsíða


Íslenskir hellar


Ritstörf


Prófarkalestur


Umbrot


Ljósmyndir


CV


Ritaskrá


Bókaskrá


Krækjur



Donnublogg


Slóveníumyndir


Slóveníuferð 2006



http://www.ritverk.is