Hellarannsóknir


Við hjá www.ritverk.is tökum að okkur hvers kyns hellarannsóknir.

Við tökum að okkur að leita nýrra hraunhella fyrir sveitarfélög og ferðaþjónustuaðila.

Við rannsökum hraunhella, kortleggjum þá og veitum síðan margvíslega ráðgjöf varð hraunhellana, hvort heldur ætlunin er að bjóða þangað ferðafólki eða leggja veg í nágrenninu.

Við tökum að okkur umhverfismat þegar hraunhellar eru annars vegar, til dæmis þegar framkvæmdir standa fyrir dyrum í hraunum. Þá þarf að rannsaka hvort hellar, þekktir eða óþekktir, eru á svæðinu og bregðast við þeim.

Við tökum að okkur hellarannsóknir á væntanlegum vegstæðum yfir hraun og svo mætti áfram telja. Við rannsökum allt sem að hraunhellum snýr og veitum faglega ráðgjöf.

Á okkur snærum eru nokkrir hellafræðingar og við höfum áratuga reynslu af rannsóknum á hraunhellum.






Forsíða


Ritstörf


Prófarkalestur


Umbrot


Ljósmyndun


Ljósmyndir


CV


Ritaskrá


Bókaskrá


Hellaferðir


Hellarannsóknir


Jarðfræðileiðsögn


Krækjur




Björn Hróarsson

Sími 898 3021

bjorn@ritverk.is

http://www.ritverk.is