September 2008


Fimmtudagur 4. september

Langþráður dagur rann upp þann fyrsta september þegar Snær byrjaði í skóla. Gleðin hófst reynar 20. ágúst eftir að úrskurður læknis lá fyrir að húðsveppurinn væri horfinn og því Snær laus úr heimilisprísundinni sem hann hefur verið í síðan í mars. Við mæðginin drifum okkur hið snarasta í bókabúð og keyptum allt inn til skólans - og draumataskan - Spædermanntaskan fannst í einni búð og þá var ekki lítil gleði í andliti Snæs. Þrátt fyrir að hafa verið heima í sex mánuði þykir hann kunna talsvert mikið í tungu heimamanna og allt útlit fyrir að skólagangan muni byrja ljúflega hjá honum.
Snær hefur staðið sig vel á þessum tíma en stundum orðið leiður yfir að hafa ekki önnur börn að leika við. Við foreldrarnir höfum stundum verið að vorkenna honum að hafa þurft að dúsa lon og don með gömlum foreldrum sínum en Snær hefur gjarnan svarað á sinn huggulega hátt: Nei, þetta er allt í lagi - þið eruð alveg ágætir foreldrar!




Fyrsta daginn fóru þeir feðgar saman í skólann klukkan 9:00. Fólk safnaðist saman í sal og þar hófst uppákoma þar sem Lína langsokkur var með allskyns fíflalæti. Snær var hinn alvarlegasti á þessum merkisdegi í lífi sínu og sagði fljótlega eftir að bullið hófst: Pabbi, förum - þetta er ekki skóli, þetta er bara einhver sýning!!!

En pabbi talaði son sinn inn á að vera lengur og taldi honum trú um að þetta væri SKÓLI. Skömmu síðar voru kölluð upp nöfn nemenda - ekki náðu þeir feðgarnir alveg þegar nafn Snæs var kallað svo að lokum var hann einn eftir. Þá fór hann upp á stól, veifaði út öllum öngum og lét þannig vita af sér. Síðan hvarf hann í stofuna með 19 verðandi bekkjarfélögum og tveim kennurum. Lét hann svo vel af skólabyrjuninni þar.
Þormar er líka byrjaður í sínum skóla og er hinn kátasti með það. Það er gott að vera að sigla inn í einhvers konar rútínu - koma krökkum í skóla og bretta upp ermar.
Hér er enn góður sumarhiti - nær tæpum 30 gráðum yfir daginn en næturnar eru að verða svalari. Við höfum ekki linnt látum í ferðalögum - vorum um síðustu helgi í króatíska strandbænum Umag. Dvöldum þar á tjaldstæði í mikilli blíðu, vorum á rölti um þann bæ, stungum tám í sjó - sumir þó meira en það - og fórum í siglingu með bát sem var með glugga á botninum svo veröld sjávardýra mætti berja augum. Kafari fór í undirdjúpin, leitaði fanga og kom með sæbjúga og krabba. Sæbjúgað líktist helst svartri gúrku enda heitir það see cucumber á ensku. Videóvélin var með í ferðum en óvíst hvort heimildamynd um ferðina fari á netið ...
Eina langa helgi í ágúst fórum við til Gardavatnsins. Við sóttum hjólhýsið á kampinn í Grado þar sem þar var skilið eftir í lok fellibylshelgar. Þar á svæðinu var mikið búið að hreinsa til en þó talsverð vinna eftir.
Við Gardavatn er fallegt. Við norðurhluta þess rísa há og tignarleg fjöll og upp með öllu eru þorp þar sem byggt er fram á brúnir. Þarna var margt í gangi, fólk í sólbaði, sjóbaði, svífandi í fallhlífum eða drekum yfir vatninu, á sjóskíðum, seglbrettum og maður féll eiginlega í stafi yfir allri þeirri aksjón sem var!







Þormar má aldrei sjá poll, vatn eða sjó - þá er hann kominn ofaní áður en við er litið!



Hér er sem hann sé að hugsa um að taka flugið ...



... hættir við og hyggst ganga á vatninu.



... klikkaði bara aaaaaðeins!



Í hæðinni fyrir ofan kampinn okkar þar sem við gistum leyndist lítið sætt þorp með bröttum þröngum götu og torgi í miðju - kennt við Markús.





Bara nokkuð rómó skot!



Baukað við myndatökur er myrkur var skollið á ...



Við keyrðum norður fyrir vatn og svo í suðurátt meðfram því.



Fallegt.



Laugardagur 13. september


Hér í landi er flest klippt og skorið. Meira að segja þegar skiptir úr sumri í vetur. Hér hefur verið um 30 gráðu hiti undanfarið en mun falla í 11 um helgina. - Kannski komin skýring á af hverju Slóvenar eru dálítið í "kössum"! Það er bara annaðhvort eða og ekkert þar á milli í flestu.
Ég stökk í sólbað í gær og svitnaði þar í tvo tíma. Svo fór ég vopnuð myndavél að sækja Snæ í skólann - vitandi að síðasti dagur sumars stóð yfir. Enda er rigning í dag og 16 stiga hiti.



Snær sóttur í skólann, truflaður í leik með tveim stelpum.



Spjallað við félaga í gegnum girðinguna - hér sést vel hve Spædermanntaskan er svakalega flott.



Fyrir utan skólann er minnisvarði um fallna hermenn frá seinni heimsstyrjöld.



Snæ finnst gaman að kljást við að komast upp klifurveggi. Hann hendist upp þennan á örskotsstundu.






Við torgið í miðbænum. Skólinn, Osnovna šola Trzin er í baksýn.



Gula klútinn bera fyrstubekkingar - merktir einhverju tryggingafélagi að ég held ...



Heima. Þormar kampakátur í sínu nýja herbergi.



Vínber fín í garðinum að verða þroskuð ...



... sömuleiðis eplin - brátt má teygja sig úr hengirúminu eftir einu.



Þessi dagbókarfærsla er sérstaklega skrifuð fyrir Daða ...


Miðvikudagur 24. september

Ormarnir ykkar!





Daði og Inga birtust hér á sunnudag alsendis óvænt - það var ægilega gaman að sjá þau. Þau fengu Björn til að sækja sig á flugvöllinn - án þess að láta okkur Þormar vita. Björn sagði mér að hann þyrfti að sækja bróður sinn, Sigurð, til Trieste og mér fannst það bara eðlilegasti hlutur í heimi.



Annars vorum við Þormar óvenju húsleg þennan sunnudag, ryksuguðum og þrifum hús og svo skellti Þormar í pönnsur! Svona eins og við vissum innra með okkur að gesta væri von - en við urðum nú samt alveg standandi hissa!



Og glöð ...



Rölt á Pizzeria da Mattia þegar leið að kvöldmatartíma.





Það mætti halda að alvarlegt umræðuefni væri í gangi en það er bara verið að panta.













Þetta var skemmtilegt - og ég fyrirgaf öllum plottið eins og skot.


Október 2008



Forsíða


Íslenskir hellar


Ritstörf


Prófarkalestur


Umbrot


Ljósmyndir


CV


Ritaskrá


Bókaskrá


Krækjur



Donnublogg


Slóveníumyndir


Slóveníuferð 2006



http://www.ritverk.is