Júní 2008
Þriðjudagur 3. júní
Það er dálítið gaman að láta sér detta í hug sisona um miðjan dag á föstudegi að fara í helgarferð til strandbæjar - henda tannbursta, bikini og stuttbuxum í tösku, loka húsi og leggja í 'ann stuttu seinna ... Og vera komin síðdegis til Porec í Króatíu, anda að sér annarri menningu og miðjarðarhafsloftinu ...

Við fórum í siglingu meðfram ströndinni og sigldum inn í Limfjord sem er býsna langur.


Margt bar fyrir augu - eyjar, báta, skútur og bæi.



Í bænum Rovinj var lagst að bryggju og við fengum máltíð um borð. Ég gerði enn eina tilraunina til að borða fisk hér á suðurslóðum - tölum ekki meira um það ...
Við trítluðum svo inn í bæinn og fengum okkur hvítvínstár til að skola niður máltíðinni!


Unglingur í hnotskurn ...

Íslendingur þessi - skrifað utan á 'ann ...

Ljúft er að láta sig dreyma ...

Skyld'ún vera að velta fyrir sér ...

... hvernig er að vera frjáls fugl?
Í Porec var gaman að vera og bærinn lifandi og skemmtilegur. Við þræddum svo fallegar leiðir með ströndinni til baka áleiðis til Ljubljana. Skammt frá Porec komum við að skemmtigarði sem þeim yngri leist vel á ...


Hinn ungi ökuþór stóð sig vel á brautinni og stoltið leynir sér ekki í svipnum.
Þriðjudagur 17. júní
Hæ, hó og jibbíjei .... við fylgjum spennt með fréttum af afdrifum hvítabjarnarins á Hrauni á Skaga - sem sennilega á að bjarga og færa til síns heima í dag eða á morgun - samkvæmt síðustu fréttum.
Annars er mikil ró hér í okkar koti í Vegovugötu eftir gestakomur. Þormar flaug til Íslands á sunnudag og verður hjá Daða og Ingu fram til 10. ágúst. Birta kom 7. júní og litli bróðir fagnaði mjög komu hennar. Sá dagur var afmælisdagur Þormars og svo vildi til að hér var straumur Íslendinga um hlað - Heimir, Ebba og Þorvaldur Garðar komu hingað keyrandi frá Prag að kvöldi 6. júní og héldu hér til fram til 14. júní - þau fóru um landið og skruppu einnig til Feneyja; svo rak Hallfríður hér inn nefið ásamt syni og tengdadóttur - við skruppum svo tvær í bæinn til að eiga vinkonuskraf í einrúmi.

Við Hallfríður áttum gott spjall yfir öllara - einum Laskó - við ána Ljubljanicu.

Lagt var á ráðin með að halda að minnsta kosti vikulangan klúbb í Harðangri og klaustri á eyjunni Krk á næsta ári - ekki vondur staður það ... Brynja, Habba, Björg, Sigga Hulda - þið mætið!!

Íslendingafundur skammt frá brúnum þremur.

... og enn fleiri Íslendingar - Anna Linda og Darri.
Að kvöldi var farið á pizzastað í Trzinbæ til að heiðra afmælisbarnið ...

... 14 ára sem sló á létta strengi við myndatöku.


Snær enn í gleðivímu yfir að hafa endurheimt Birtuna sína.

Heimir eitthvað að spökulera...

... og Ebba hin glaðbeittasta.

Afmælisísinn snæddur. Þessir tveir náðu ágætlega saman - hvort sem var í tölvuleikjum, trambólínhoppi eða spjalli langt fram á nætur ...
Hér í landi er náttúrlega bara venjulegur þriðjudagur í dag - en við Íslendingarnir ætlum að fagna deginum með að fara út að borða saman síðar í dag - höfum kannski fánann með okkur í tilefni dagsins. - Og það rignir ... reyndar bara lóðrétt!
Fimmtudagur 26. júní
Síðasta sunnudag hélt Elín Eva Sigurðardóttir upp á 8 ára afmælið sitt. Veislan var haldin við Svanavatnið - Zbilje - og þar er ósköp huggulegt og ljúft að vera.


Hluti veislugeista að gæða sér á ís í hitanum.

Kata ... kotroskin að vanda.

Þokkafullir ...

... minna einhvern veginn auðveldlega á ballettdansmær - eða brúðarkjóla ...eða - Björk!

... og fanga auðveldlega athygli.


Júlí 2008