Janúar 2008


Föstudagur 4. janúar



Einn, tveir og ...



... og nú tekst það!



Nammi, namm.







Lísa heldur að hún sé jólaköttur og það þýði að hún megi hamast í jólatrénu.

Hér er lífið að færast í eðlilegra horf eftir letilega daga í rólegu jólafríi. Snær er farinn að mæta aftur í sinn leikskóla en Þormar kvaddi sinn slóvenska skóla í gær og hóf nám í dag í enskumælandi skóla. Skólinn heitir Danila Kumar og hann sækja nemendur frá um 40 löndum. Við Þormar fórum í heimsókn í skólann í gær og leist vel á starfsfólk, nemendur og andrúmsloft. Í bekk Þormars eru 19 nemendur. Nám er einstaklingsmiðað og námsgreinar samþættar. Þetta verður spennandi og vonandi mun allt ganga vel hjá Þormari í nýjum skóla.
Við Þormar fórum einnig í gær í gamla skólann og kvöddum bekkjarfélaga og kennara. Bekkjarfélögunum fannst greinilega eftirsjá í Þormari og þetta var ósköp sæt og hjartnæm kveðjustund. En þessar aðstæður eru mjög erfiðar fyrir nemendur á unglingastigi - og það verður væntanlega léttir fyrir Þormar að sitja í kennslustundum í nýjum skóla og vita eitthvað hvað er í gangi ... Hvort sem hann lýkur svo grunnskóla á Íslandi eða hér getur þessi skóli gefið honum gott nám í farteski inn í framtíðina.

Annars héldum við hér íslensk jól og áramót. Jólamáltíð á milli klukkan 6 og sjö, ætluðum að hafa dádýrasteik en vegna skorts á úrvali varð valið á endanum nýr svínahryggur með pöru og negulnöglum og hvað þetta nú heitir ... það tókst vel, ketið var lungamjúkt og bráðnaði í munni. Aðfangadagskvöld var rólegt og sjálfu sér líkt - sennilega kemur jólaandinn einhvers staðar innanfrá og er líklega ekki svo háður stað ...
Svo snæddum við gómsætt hangikjöt á jóladag sem kom upp úr ferðatöskum Daða og Ingu frá Íslandi.
Gamlárskvöld var mjög íslenskt: Lagt var upp með að elda kalkún og slíku kvikindi kippt með úr búðinni - sem var reyndar grunsamlega létt svona miðað við kalkún - en það verður að játast að ekki hefur húsmóðirin mikla reynslu af eldamennsku á slíkum kykvendum - samt fannst henni hann ansi rýr og ræfilslegur þegar plastið var rifið af skepnunni og hafði um það einhver orð við húsbóndann. Hann hefur hins vegar enn minni reynslu af eldun slíkra kvikinda og gaf lítið út á það komment. Kvikindið var kryddað og steikt að hætti kalkúna og búin til fylling. Svo þegar reyndur aðstoðarkokkur, Inga , leit yfir öxl aðalkokksins, kom einhver athugasemd sem gaf til kynna að efast væri um rétta skilgreiningu á rétti kvöldsins. Aðalkokkurinn rauk í ruslafötuna og fann plastið utan af skepnunni og við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þetta var alls enginn kalkúni, og ekki heldur kanína (sjúkkitt!) - en líklegast önd!
Rétturinn fékk nafnið kalkönd og mörgum þótti hann bragðast vel ...
Við horfðum svo á fréttaannál á netinu og á skaupið sem okkur þótti afbragsgott. Að því loknu var skotið upp flugeldum og hvers kyns tertum og bombum. Slóvenar gera eins og við og skjóta upp flugeldum í tilefni nýs árs en ekki kemst dýrðin í hálfkvisti við dýrðina heima á Fróni.


Föstudagur 18. janúar


Hér getur að líta sérhannaða matardalla Lísu. Hún þurfti nefnilega að fá hálskraga eftir að hafa undirgengist ófrjósemisaðgerð. Með sérstakri útstjónarsemi tókst að búa til þessa matardalla þannig að Lísa getur nærst þrátt fyrir hálskragann. Líklegt er að kattarmatardallar þessir verði tilnefndir til hönnunarverðlauna fyrir bæði fegurð og einstakt notagildi.
Snær hágrét þegar hann kom heim og hitti Lísu fyrir með hálskragann. Það bætti ekki úr skák að hún hafði fengið sérstakt gel í augun eftir aðgerðina þannig að hún líktist helst geimketti með æpandi græn augu. En Lísa er mikið að hressast og losnar við hálskragann á sunnudag. Spurning hvort hún vill þá fá aftur gamla rauða plastdallinn eða nota þessa sem líkjast sennilega matardöllum konungborinna katta.
Annars er allt gott að frétta af okkur hér í Gradnikóvugötu eitt. Það er vorblíða þessa dagana, við Björn fórum í göngutúr í 7 stiga hita og sól í dag á meðan Snær var á fótboltaæfingu. Strákarnir fengu skíði í vikunni og á áætlun að fara um helgina og leyfa þeim að spreyta sig. Það var indælt að rölta í blíðunni í dag - vor í lofti og svo spáir áframhaldandi hlýindum um helgina.

Sunnudagur 20. janúar

Við fórum á skíðasvæði í gær, laugardag sem nefnist Krvavec. Við fórum hátt upp á fjall með kláfi sem fékk magafiðrildi til að fara á kreik. Uppi reyndist vera stórt svæði með mörgum skíðalyftum. Strákarnir prófuðu nýju skíðin sín. Hjá sumum bar á miklum skaptöktum þegar allt lék ekki alveg í lyndi ...


Brúnaþungur.


Nú skal reynt - aldrei að gefast upp ...


Jibbí - það tókst!


Þetta er allt að koma hjá mér!


Gera sig kláran í næstu ferð ...


Nú er ég orðinn svo klár að ég vinka mörgæsunum!


Þetta var FLOTT mamma, var það ekki!


Þormar leið léttilega niður brekkurnar.


Þormar að skila sér niður stóru brekkuna.


Einbeitnin leynist ekki.


Þormar á fullri ferð.


ARG! mamma - allt þér að kenna!!!


En svo var líka lært að detta með bros á vör!


Sæll og rjóður Þormar. Flott útsýnið ofan af skíðasvæðinu í baksýn.


Brosandi englar í snjó.


Sunnudagsbíltúr til Austurríkis


Undurfallegur fjalladalur - Slóveníumegin Alpanna.


Úr sama dal, hér gæddum við okkur á nesti í sól og blíðu.


Þegar niður Alpana kom Austurríkismegin máttum við keyra inn í þoku og henni létti ekki fyrr en klifrað hafði verið upp í fjöllin á ný.


Þetta er nú ekki slorlegt hús að búa í ...


Strákar bregða á leik Slóveníumegin landamæranna.


Staðurinn heitir Ljubelj og er í faðmi undurfagurra fjalla. Þegar rýnt hafði verið í minnismerki á staðnum kom í ljós að þarna voru útrýmingarbúðir nasista - og göngin sem við höfðum komið í gegnum verið gerð af föngum úr þeim hópi ...


Afmælisveisla í Postojnahelli


Komið um borð í lestina sem keyrði okkur inn í hellana.


Við krakkarnir kölluðum og kölluðum svo að glumdi í hellinum og ...


... og þá birtist dreki!


Það verður að játast að ég var pínu hræddur við hann ...

Febrúar 2008



Forsíða


Íslenskir hellar


Ritstörf


Prófarkalestur


Umbrot


Ljósmyndir


CV


Ritaskrá


Bókaskrá


Krækjur



Donnublogg


Slóveníumyndir


Slóveníuferð 2006



http://www.ritverk.is