Björn Hróarsson - CV


Björn Hróarsson (111162-2399) er giftur Guðrúnu Ingibjörgu Hálfdanardóttur sérkennara. Börn hans eru fjögur: Steinar (25 ára), Kári (20 ára), Birta (18 ára) og Snær (6 ára).

Vorið 1982 útskrifaðist Björn sem stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi. Í ársbyrjun 1986 útskrifast Björn sem jarðfræðingur frá Háskóla Íslands. Á árunum 1985 og 1986 stundaði Björn framhaldsnám í hellafræði við Háskóla Íslands.

Á háskólaárunum hófust afskipti Björns af útgáfumálum fyrir alvöru, fyrstu ritsmíðar hans litu dagsins ljós og fyrstu ljósmyndir hans birtust á prenti.

Í ársbyrjun 1987 réðist Björn til starfa sem ritstjóri Ferðahandbókarinnar Land og textagerðarmaður auglýsingastofunnar Martin. Allar götur síðar hefur Björn einkum unnið að útgáfumálum. Þar má nefna ritstörf, fréttamennsku, blaðamennsku, textavinnslu, ritstjórn, ljósmyndun, útgáfustjórn, markaðssetningu, prófarkalestur, auglýsingagerð, hönnun, umbrot, skeytingu, almenna umsjón prentverka, vefsíðugerð, markaðssetningu vefsíðna og síðast en ekki síst framkvæmdastjórn og fjármálastjórn.

Sem ritstjóri Ferðahandbókarinnar Land árið 1987 hófust afskipti Björns af markaðsetningu íslenskrar ferðaþjónustu.

Á árinu 1988 hóf Björn störf á fréttastofu útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar og skrifaði þar og flutti fréttir um tveggja ára skeið eða meðan fyrirtækið hélt úti fréttastofu. Auk þess hefur Björn unnið töluvert fyrir bæði útvarp og sjónvarp, einkum við þáttagerð um náttúru Íslands.

Með starfi sínu sem fréttamaður á útvarpsstöðinni Stjörnunni starfaði Björn áfram að útgáfumálum, ritstörfum, ritstjórn, ljósmyndun og almennri útgáfuþjónustu. Eftir að fréttastofa Stjörnunnar var lögð niður starfaði Björn sjálfstætt að ritstörfum og útgáfumálum.

Árið 1989 fékk Björn fyrstu verðlaun í alþjóðlegri ljósmyndasamkeppni. Í desember 1990 var bók Björns Hraunhellar á Íslandi tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Á árinu 1989 stofnaði Björn Hellarannsóknafélag Íslands og var fyrsti formaður þess. Á árunum þar í kring var Björn formaður Félags Þingeyinga í Reykjavík.

Árin 1991 og 1992 vann Björn einkum að bókunum Hverir á Íslandi sem út kom í desember 1991, Árbók Ferðafélags Íslands fyrir árið 1992 (Norðan byggða milli Eyjafjarðar og Skjálfanda) og barnabókinni Skoðum landið, ferðahandbók barnanna sem út kom í árslok 1992 sem og ensk útgáfa hverabókarinnar, Geysers and Hot Springs in Iceland. Á þessum tíma tók Björn einnig mikið af ljósmyndum en yfir 9000 mynda hans hafa birst á prenti. Björn var söluhæsti rithöfundur á Íslandi árið 1992 en á því ári seldust yfir 20.000 eintök af bókum hans.

Síðustu mánuði ársins 1991 tók Björn að sér starf markaðsstjóra Borgarkringlunnar sem þá hafði nýlega tekið til starfa og fékk það hlutverk að Borgarkringlan fengi sinn skerf af jólaversluninni 1991.

Um mitt ár 1992 tók Björn að sér ritstjórn Tímaritsins Þroskahjálpar og sá um útgáfumál Landssamtakanna Þroskahjálpar til 1. janúar 2006. Hann ritstýrði 54 tölublöðum og sjá einnig um umbrot, myndvinnslu og frágang til prentunar á öllum tölublöðunum.

Björn stofnaði útgáfufyrirtækið Gott mál hf. í árslok 1992 og var framkvæmdastjóri þess. Gott mál hf. starfaði einkum sem útgáfuþjónusta en gaf einnig út nokkrar bækur. Á árinu 1995 lét Björn af störfum sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og seldi síðar sinn hlut í Góðu máli hf.

Undir lok ársins 1994 var Björn ráðinn yfirritstjóri alþjóðlegrar bókaútgáfu, Nordic Book, og ritstýrði og sá um útgáfu á 512 blaðsíðna bók um öll Norðurlöndin átta sem út kom snemma árs 1996 bæði á ensku og kínversku. Enskri útgáfu bókarinnar var einnig komið fyrir á Internetinu. Um mitt ár 1995 var Björn ráðinn sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem þá var með starfsemi í öllum Norðurlöndunum átta og starfsfólk var um 30 talsins. Björn fylgdi síðan framleiðslu bókarinnar eftir í Singapure og stýrði síðan markaðsetningu og sölu bókarinnar í Kína og Hong Kong.

Næsta verkefni Nordic Book var bók um Litháen sem út kom árið 1997 á bæði ensku og þýsku. Tókst það verkefni vel í alla staði og var Litháenbókin sett á Internetið í heild sinni auk þess að koma út á geisladiski. Undir lok ársins 1998 kom út bók um Slóveníu á ensku, þýsku og á Interneti og sambærileg bók um Lettland kom út á vordögum 1999 á bæði ensku og þýsku auk þess sem bókin var sett á Internetið.

Björn ritstýrði öllum útgáfum Nordic Book. Á þessum árum dvaldi Björn langdvölum erlendis og mánuðum saman samfleytt í Kína, Singapúr, Lettlandi, Litháen og Slóveníu. Björn hefur heimsótt á fimmta tug þjóðlanda og staðið fyrir atvinnustarfsemi í tólf löndum.

Björn sagði upp framkvæmdastjórastöðu Nordic Book á árinu 1999 til að vinna áfram með netmiðilinn Randburg (www.randburg.com) sem er hugarsmíð Björns auk þess sem hann setti vefinn upp og sá um markaðsetningu á honum fyrstu árin. Grunnurinn í Randburg voru allar útgefnar bækur Nordic Book og var Randburg ætlað að vera staður þar sem öllum bauðst að koma sér á framfæri á Internetinu.

Björn var ritstjóri Randburg fjölmiðilsins á Internetinu frá 15. janúar 1997 til 15. janúar 2001 eða samfleytt í fjögur ár og framkvæmdastjóri fyrirtækisins á sama tíma. Þegar hann lét af störfum hjá Randburg var fjölmiðillinn fjölsóttasta upplýsingaveita um Ísland á Netinu. Björn seldi Fróða hf. Randburg fjölmiðilinn. Var rekstur Randburgar góður skóli í on-line markaðssetningu og hafði óumdeilanlega mikið forskot á aðra sambærilega vefi á þeim tíma sem Björn var þar framkvæmdastjóri.

Á árinu 1996 stofnaði Björn útgáfufyrirtækið Pjaxa ehf. og var framkvæmdastjóri þess. Pjaxi ehf. býður margvíslega útgáfuþjónustu með sérstaka áherslu á hagkvæma prentun í Slóveníu. Prentmiðlun, útgáfuþjónusta og bókaútgáfa voru hornsteinar rekstursins hjá Pjaxa eftir að Randburg fjölmiðilinn var seldur til Fróða hf. 10. janúar 2001. Björn seldi Pjaxa ehf. í maí árið 2005 til að geta helgað sig rannsóknum á hraunum, hraunrennsli og hraunhellum og búa til bókina Íslenskir hellar.

Björn lauk nýverið við kennslubók í landafræði fyrir Námsgagnastofnun og mikla bók (Íslenskir hellar) um hraunhella í náttúru Íslands.

Á síðustu tuttugu árum hefur Björn stundað rannsóknir á hraunrennsli og hraunhellum, haldið fjölda fyrirlestra, bæði hér heima og erlendis, auk þess að starfa sem fararstjóri og leitt hópa um íslenska náttúru, bæði ofan jarðar og neðan.

Frá júlí 2007 til desember 2008 bjó Björn í Slóveníu þar sem hann fékkst einkum við ritlist, myndlist, hönnun, ritstjórn og útgáfu, markaðssetningu og sölu.




Ritaskrá Björns Hróarssonar.

Bækur eftir Björn Hróarsson.

Bækur sem Björn hefur brotið um.


Forsíða


Íslenskir hellar


Ritstörf


Prófarkalestur


Umbrot


Ljósmyndir


CV


Ritaskrá


Bókaskrá


Krækjur



http://www.ritverk.is